Útitæki - Norwell

Norwell Form Function eru líkamsræktartæki til notkunar utanhúss. Tækin eru hönnuð til að allir, óháð aldri og daglegum störfum, geti notið þess að stunda lífsnauðsynlega hreyfingu í almenningsgarðinum, á vinnustaðnum, á skólalóðinni, á íþróttavellinum og svo framvegis.
Tækin byggja á einfaldri skandínavískri hönnun og stuðla að fagurri upplifun ásamt því að bjóða upp á rétta þjálfun fyrir heilsuna og líkamann.


 

Gæði og öryggi

Norwell býður upp á bestu gæði og öryggi.
Norwell gerir engar málamiðlanir þegar kemur að öryggi – öll tækin eru prófuð og vottuð með hliðsjón af TÜV staðlinum fyrir utanhúss líkamsræktartæki.
Prófunaraðferðin sem notuð er blandar saman EN1176 staðlinum fyrir leiktæki og EN957 staðlinum fyrir innanhúss líkamsræktartæki. Þetta tryggir að það er öruggt að setja Norwell-tækin upp á öllum opinberum stöðum, líka þar sem börn fara um. Hið sama gildir um gæðin – Norwell notar eingöngu bestu hráefni sem eru prófuð og vottuð.

Ísmörk ehf | ismork@ismork.is | www.ismork.is
Símar: 354-586-8327 \ 354-862-6327 | Fax: 354-586-8326